Færsluflokkur: Umhverfismál
Svipmikinn ég þennan sá
sem fráleitt er klúður.
Stöndum saman & horfum á
Stúlku - ekki brúður.
Hinn 1. nóvember næstkomandi efnir UN Women til landssöfnunar í samstarfi við Rúv um skaðlegar afleiðingar þvingaðra barnahjónabanda í Malaví.Þar í landi er önnur hver stúlka þvinguð í hjónaband fyrir 18 ára aldur.
Stúlka - ekki brúður stiklaÍ tilefni af þættinum hefir Strætó bs. skreytt einn af rafvögnunum 14 með áhrifamiklum hætti.
Dr. Gylforce finnst hafa tekist vel til með rafvagn þennan & hlakkar til þess að sjá hann á vígvöllum veganna.
Umhverfismál | 26.10.2019 | 11:41 (breytt kl. 11:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Græn er orkan okkar
er endurnýjanleg.
Nú fara menn að flokka
fer allt á besta veg.
Græn Borgarlína
Það berast enn spennandi fregnir af hinni svokölluðu Borgarlínu. Á dögunum undirrituðu Strætó bs., Landsvirkjun, Vegagerðin og Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) samkomulag hvar leitað verður lausna & fundinn hentugasti orkugjafinn fyrir vagna Borgarlínunnar. Áætlað er að fyrstu tvær línur hennar hefji akstur árið 2023.
Markmiðið er að línan verði vistvæn og orkugjafinn innlendur. Vetni, rafhlöður og metan hafa mismunandi eiginleika og koma allir til greina fyrir vagna Borgarlínunnar.
Dr. Gylforce hélt reyndar að búið væri að ákveða að um rafvagna yrði að ræða en um að gera að fara í rækilega greiningu á því hvað sé hentugast.Vonandi tekur sú vinna ekki of langan tíma því útboðið sjálft á vögnunum verður líklega flókið og nokkuð tímafrekt eins & gengur & gerist hjá opinberum aðilum.
Vetni? Metan? Rafmagn? Dr.-inn er orðinn spenntur nú þegar - maður lifandi!!!
Umhverfismál | 25.10.2019 | 21:12 (breytt kl. 21:19) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvítur & hreinn er
hraustur á velli,
útblástur minni
yndislegt lopt.
Metanvagn hér
mér ég í skelli,
ver´í þeim inni
virkilega opt.Dr. Gylforce leitar nú dyrum & dyngjum að nýjasta vagni í flota byggðasamlagsins, hvar sá er hvítur að lit aukinheldur að vera metanvagn með raðnúmerið fyrsta & geðþekka, 101. Maður lifandi!
Dr. Gylforce langar svá að sjá hann á vígvöllum veganna & mæla: "Sjaldséðir eru hvítir vagnar." Hvað um það.
Svá virðist sem Strætó bs. hafi hug á að festa fjár í enn fleiri metanvögnum sem er fagnaðarefni. Forvígismenn SORPU hafa t.a.m. komið á fund hjá stjórn byggðasamlagsins til skrafs & ráðagerðar um væntanlega hvu mikið hægt er að framleiða af metangasi & afhenda upp á Hestháls eða því sem næst. Nema hvað.
Annar af gömlu metanvögnunum, 119 vagninn, hefir sést aptur á vígvöllunum & var á leið 4 í gær.
Illu heilli náði dr. Gylforce ekki í skottið á honum en vonar að vagninn sá eigi töluvert eptir á tanknum til þess að gleðja oss vagnverja með sænskættuðu stáli & hreinni útblæstri.
Yfir&út!
Umhverfismál | 24.10.2019 | 15:21 (breytt kl. 15:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Velkominn vertu
í vagninn góða
vinir í sætum,
vinsemd & ró.
Kær okkur ertu,
eðall fjársjóða
dansandi á strætum,
dásemd - bravó!
Gaflara-gleðiÞá er loksins komið á hreint hvernig leiðakerfi þeirra Gaflara verður háttað. Dr. Gylforce hefir nú æði opt gagnrýnt það hér í bloggi þessu & góðu heilli á nú að einfalda það til mikilla muna. Hipp-hipp-húrrey!
Gylforce-inn vonar heitt & innilega að Gaflarar taki breytingu þessari vel en næsta sumar verða aðeins tvær leiðir innanbæjar, leið 19 & 21 auk leið leiðanna, leið 1 & leið 55. Nema hvað.
Fyrirhugaðar breytingar ríma vel við Borgarlínuna - sem er vel - & hlakkar hinn lautelski doktor til sumarsins til þess eins að líða um lendur Hafnfirðinga í þessum tveimur leiðum.
Amen.
Umhverfismál | 23.10.2019 | 23:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sit inn í vögnum
saddur & glaður,
Hér eru verjar
hér er fjör!
Þessu við fögnum
þægilegur staður,
á okkur senn herjar
unaðsleg för.
Hinn torráðni & tregi dr. Gylforce hefir dregið sig í hlé undanfarið en brýst nú út í bloggheima sína með berserks- & æðibunugangi miklum. Ó-já. Maður lifandi!
Það hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins hve margir borgarbúar, eða ríflega 40%, halda að Borgarlínan sé annaðhvort lestakerfi (hrað- eða léttlestir) ellegar sporvagnakerfi. Hún er nefninlega hvorugt. Hún er gæða strætókerfi, jafnvel hágæða.
Dr. Gylforce telur að það hafi ekki verið gáfulegt að koma upp með nafnið Borgarlína. Með því halda flestir að eitthvað annað sé í vændum en bara hepðbundið vagnakerfi. Nema hvað.Hinsvegar má segja nafninu til varnar að í upphafi var ákveðið að kanna hagkvæmni og kostnað við einhvers konar lestakerfi. Fékk verkefnið því nafnið Borgarlína.
Eptir ítarlegar rannsóknir var fallið frá því að hafa línuna lestakerfi, einkum vegna mikils kostnaðar, en þó með því að búa svo um hnútana að hægt sé að breyta henni í slíkt kerfi í framtíðinni, ef vilji er fyrir því.
Það var &.
Amen.
Umhverfismál | 22.10.2019 | 16:01 (breytt kl. 16:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Sett á laggirnar leiðanet
lít ég á það brátt.
Búast má við á beinum ket
býst ég við langri nátt.
Hið lostfagra leiðanet
Hið nýja leiðanet leit dagsins ljós á dögunum, hvar óhætt er að segja að með neti þessu verður gerbreyting á almenningssamgöngum á höfuborgarsvæðinu. Maður lifandi!Leiðanetið er enn í mótun & geta áhugasamir mætt á fundi sem fyrirhugaðir eru & vonast dr. Gylforce um að sitja þá nokkra. Nema hvað.
Þangað til hyggst Stútulautardoktorinn stúdera þessar fyrstu tillögur sem minna hann í fljótu bragði á leiðakerfisbreytingarnar sem gerðar voru hjá Strætó sumarið 2005. Meir um það síðar.
Umhverfismál | 10.10.2019 | 22:23 (breytt kl. 22:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leiðakerfi tillögur
Á dögunum komu hingað bandarískir háskólanemar hvar verkefni þeirra var m.a. að rannsaka leiðakerfið hjá Strætó og koma með hugsanlegar úrbætur.Nemarnir voru nokk fljótir að spotta út að eitt & annað er athugavert við tengikerfið hjá Strætó, svokallað púlsakerfi, sem þýðir að strætóleiðir koma á svipuðum tíma í Hamraborgina, Mjóddina, Fjörðinn, Ártún, Ásgarð & Spöngina til þess að vér vagnverjar þurfum ekki að bíða þegar við skiptum um vagn. Nema hvað.
Á annatíma fer tengi/púlsakerfið út um þúfur því strætisvagnar sitja fastir í umferðarteppum sem þýðir að vagnverjinn þarf að hinkra lengi eptir næstu leið er aptur gerir hann efalítið ergilegan. En ekki hvað???
Púlsakerfi á bak & burt
er Borgarlínan hefst?
Kannski verður það um kjurt
& kerfið áfram tefst?Nemendunum finnst affarasælla að segja skilið við tengi/púlsakerfið & auka tíðni á leiðum til að lágmarka biðtíma verjanna.
En er það ekki mun dýrari lausn? Dr.-inn hepði nær haldið það. Hann vissulega myndi fagna því ef tíðnin verði aukin - maður lifandi!
Það verður því fróðlegt að sjá hvernig leiðakerfið verður aðlagað að fyrirhugaðri Borgarlínu & þá hvort tengi/púlsakerfið heyri ekki sögunni til.
Umhverfismál | 8.10.2019 | 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eldurinn blossar ótt
ekki var sá á leið.
Greip um sig skelfing skjótt
skapaðist þó öngvin neyð.
Eldur í vagniDr. Gylforce er heldur dapur í bragði dag þennan, hvar einn af vinum vorum - vögnunum - tók upp á því að brenna á sér apturendann í morgun. Nema hvað.
Góðu heilli hapði vagn þessi, 179 Iveco Crossway, sem er tæplega fimm ára gamall, nýlokið akstri um morguninn á annatíma & var kominn upp í höfuðstöðvar Strætó að Hesthálsi. En ekki hvað???
Vitaskuld gera slysin ekki boð á undan sér. Dr.-inn er hinsvegar hugsi yfir því að ekki eldri vagn en þetta fuðri upp. Doksi kallinn hepði skilið það betur ef einhver af gömlu jálkunum hepðu langað að hita sig vel upp :)
Hvað um það. Vonandi verður hægt að lappa upp á þennan fína vagn en þó er ljóst að skemmdirnar eru talsverðar.
Yfir&út!
Myndir: mbl.is
Umhverfismál | 30.9.2019 | 16:03 (breytt kl. 16:06) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bjarni Ben & Dagur Bé
um Borgarlínu masa.
Reyna nú að finna fé
sem finnst í okkar vasa.Gleðitíðindi vikunnar fyrir vagnverjann dr. Gylforce voru efalítið staðfestar fregnir um uppbyggingu Borgarlínunnar. Nema hvað.
Stjórnvöld kynntu til sögunnar sáttmála og sýndu vandað myndband varðandi framkvæmdirnar því þær snúa ekki bara að línunni heldur að öllum samgöngumátum á höfuðborgarsvæðinu.
Samkvæmt myndbandinu verður Borgarlínan annað hvort styttri en fyrri hugmyndir voru um eða það eigi að halda áfram með línuna út í hverfin í næstu áætlun sem verður eftir árið 2033. Þá má gera ráð fyrir fullbúinni Borgarlínu líklega í kringum árið 2050!!!
En lítum á uppbygginguna samkvæmt myndbandinu:
1. áfangi tilbúinn árið 2023: Ártún-Hlemmur og Hamraborg-Hlemmur. Þar ber að fagna að láta línuna fara frá Ártúni um Skeifu og Suðurlandsbraut hvar mikið er af fyrirtækjum og verslunum. Hin línan, Hamraborg-Hlemmur verður athyglisverð í gegnum Kársnesið og nýja Fossvogsbrú á leið sinni á Hlemminn.
2. áfangi tilbúinn árið 2024: Hamraborg-Lindir. Tímasetning á þessum legg línunnar vekur gjörhygli Gylforce-ins. Hvers vegna er þetta þriðji áfangi Borgarlínunnar??? Hepði ekki verið betra & mikilvægara að ráðast fyrst í Mjódd-BSÍ eða Kringlan-Fjörður??? Vissulega er Smáralind i þessum legg & mikilvægt að hafa góðar almenningssamgöngur að verslunarmiðstöðvum og geta verslunareigendur þar því tekið gleði sína.
Jæja meira síðar um hina áfangana sem eru:
3. áfangi 2026 Mjódd-BSÍ
4. áfangi 2030 Kringlan-Fjörður
5. áfangi 2031 Ártún-Spöng
6. áfangi 2033 Ártún-Mosfellsbær
Umhverfismál | 29.9.2019 | 12:14 (breytt kl. 21:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Unaður á annað plan
almenningssamgöngur.
Sumum finnst það feigðarflan
fagur öðrum söngur.
Uppáhaldsmyndbandið mittStjórnvöld kynntu í vikunni mikla samgönguáætlun til ársins 2033 hvar Borgarlínan kemur vitaskuld þar vel við sögu. En ekki hvað???
Hið fyrsta sem hið gamla hró dr.´s Gylforce hnýtur um er að nú er kostnaður við línuna áætlaður undir 50 milljörðum??? Dr.-inn man ekki betur en alls staðar í opinberum gögnum hefir upphæðin verið milli 60-70 milljarðar og það jafnvel varlega áætlað!!!
Verður þetta styttri lína eða eigum vér línverjar að borga brúsann???Líklegt svar er hið fyrra; Borgarlínan sem kynnt er í myndbandinu verður ekki um 54-58 km að lengd eins og fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir.
Það er í fínu lagi, það mátti alveg stytta línuna & nýta leiðakerfi Strætós fyrir ákveðin hverfi. Leiðanet Strætós mun aðlaga vagnana að línunni & er sú vinna í fullum gangi.
Enn & aptur; það eru spennandi tímar framundan. Fyrstu áfangar Borgarlínunnar, Hamraborg-Hlemmur & Ártún-Hlemmur eiga að vera tilbúnar eptir fjögur ár eða 2023.
Dr. Gylforce bíður spenntur.
Umhverfismál | 28.9.2019 | 12:03 (breytt kl. 12:14) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.7.): 2
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 123841
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar