Hinn hollvætti & hárbeitti dr. Gylforce fékk hroll & hrein eins & stunginn grís, hvar hinn huggulegi Irisbus Karosa á leið 4 lenti í smá nuddi við gamlan skrjóð á annatíma síðdegis í gær. Nema hvað.
Dr.-inn hélt heim úr mennta- & menningarsetrinu & hugði á fína ferð frá Hamraborg þeirra Kópvæginga yfir í Mjódd okkar Breiðhyltinga. En ekki hvað???
Ferðin sóttist vel uns vagninn rann niður Túnbrekkuna & ætlaði að beygja inn Nýbýlaveg til austurs. Komst hann þá hvorki lönd né strönd því gamall Bens var bilaður á veginum. Komu þar nokkrir galvaskir gaurar & ýttu honum aðeins til hliðar.
Það reyndist þó ekki nóg því 161 Karosavagninn nuddaðist aðeins í hliðina á skrjóðnum & varð úr hin mesta töf en skemmdir urðu óverulegar - góðu heilli.
Dr.-inn var vitaskuld miður sín yfir þessu enda leitt að sjá vini sína rispast & skemmast. Doksi kallinn reyndi að halda andlitinu & eptir drjúga stund gat vagninn haldið loks áfram leið sinni. Hvað um það.
Við Nýbýlin nuddaðist
við nöturlegan skrjóð.
Hræið atarna asnaðist
að enda sína slóð.
Grautfúll varð Gylforce-inn
í grátinn há brast.
Féllu tár á föla kinn
fékk hann æðiskast.
Bloggar | 22.11.2017 | 08:14 (breytt kl. 08:28) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. nóvember 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 118905
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar