Vappa mér í vagninn minn
vonandi finn gleði.
Virðulegur, vagnbúinn
& vagnheill á geði.
Hinn vagnmáttugi & vel metni dr. Gylforce hefir farið á fjörurnar sem & sopið hana meðal vina sinna - vagnanna - undanfarna daga.
Dr.-inn tók sér far með leiðum 1 & 13 niður Hverfisgötuna, hvar vinir vorir aka nú aptur þá unaðsleið.
Það spillti ekki fyrir að Irisbus númer 134 var á leið leiðanna, leið 1, sem er afar sjaldgæft & gat doksi kallinn ekki annað en tekið með honum einn góðan rúnt í Fjörðinn. Nema hvað.
Leið leiðanna var vitaskuld sneisafull - enda doksi á vappi á háannatíma. Þótt leið 1 aki nú með tíu mínútna tíðni á annatíma er leiðin nánast sprungin; kalla þarf inn 2 aukavagna á morgnana & aka þá 14 vagnar þessari kynngimögnuðu leið. Hvað um það.
Dr. Gylforce hóaði að lúkningu í leið 3 hvar hann hélt afar kátur & keikur upp í Stútulautarselið sitt.
En ekki hvað???
Bloggar | 24.3.2017 | 11:12 (breytt kl. 18:01) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 24. mars 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.5.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar