Hinn valinkunni & vitiborni dr. Gylforce hélt vitaskuld á vit vagna í gær, hvar hann komst í leiðir þrjár á vígvöllum veganna. Nema hvað.
Dr. Gylforce settist í Citelisvagn á leið 4 hér við Stútulautarselið sitt & hossaðist svá inn í einn hollenskan VDL vagn á leið 12 við Mjóddina. Stefnan var tekin hina mögnuðu Mathöll, hvar kneyfa átti ölið af áfergju í góðra vina hópi. En ekki hvað???
Dr.-inn tók 3ju síðustu ferð leiðar 3 heim í gærkvöldi, hvar hún reyndist einkar ánægjuleg. Urmull vagnverja var með í för eins & neðri myndin sýnir glöggt & mátti vagnstjórinn hafa sig allan við að halda áætlun. Slíkt vekur gjörhygli Gylforce-ins, því yfirleitt á það að reynast létt verk & löðurmannlegt á fögru haustkvöldi. Hvað um það.
Í vagna að veiða
verjanum líkt.
Að gera sig gleiða
gerir hann slíkt?
Í eldsneyt´að eyða
endalaust sýkt.
Í "businum" breiða
í bljúgri auðmýkt.
Að ganga inn & greiða
gleðin er ýkt.
Að leita allra leiða
er lærdómsríkt!
Lífstíll | 16.9.2017 | 19:36 (breytt 18.9.2017 kl. 00:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 16. september 2017
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.5.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 118893
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar