Aksturinn reyndist optast spól
því er ekki að neita.
Tíminn eins& álfur út úr hól
sem ætti strax að breyta.
Hinn freðni en þó forkunnarfagri dr. Gylforce fór á fjörurnar við vini vora, vagnana, í fimbulkuldanum, hvar hann hugði kynna sér leið 28 en endaði í tvistinum. Nema hvað.
Dr. Gylforce skondraðist milli sveitarfélaga & sótti Kópvæginga heim & vildi inn í leið 28. Leiðin sú hapði hinsvegar öngvan áhuga á doksa kallinum & brunaði hinn stutti Iveco vagn framhjá honum við Hvammsveg einni mínútu á undan áætlun. Svei!
Nú voru góð ráð alls ekki dýr, hvar leið 2 er steinsnar frá Hvammsvegi & rölti doktorinn að Fífuhvammsvegi/Salavegi.
Leið 2 kom á réttum tíma við Nettó Salaveg áleiðis í Mjóddina. Dr. Gylforce hapði hug á að tjútta með tvistinum að Mjódd okkar Breiðhyltinga & troða sér næst í þristinn heim að Stútlautarselinu sæla. En, viti menn, kárnaði þá gamanið - maður lifandi!
Leið 2 á erfitt með að halda áætlun í efri byggðum Kópavox. Einhver gæti bent á að færðin sé nú ekki sú besta - sem er satt.
Hinsvegar er því ekki að leyna að á laugardagseptirmiðdegi á öngvin strætisvagnaleið að vera á eptir áætlun vegna þess að vagnverjar eru yfirleitt ekki jafnmargir og aðra daga aukinheldur sem umferð er að öllu jöfnu minni.
Strætó bs. þarf að laga tímaáætlanir á leið 2. Vagninn þarf að fara fyrr af stað frá Hlemmi sem hefir reyndar þann ókost að vera þá meir úr takti við leiðirnar í Hamraborginni. Svo verður að vera aukinheldur sem núna á leið 2 að koma í Mjódd 21-51 sem er sami tími & aðrar leiðir fara þaðan!
Það er skrýtin ákvörðun & kallar bara á vesen fyrir okkur vagnverjana sem viljum skipta um leið.
Koma svoooooo!!!
Bloggar | 20.1.2018 | 21:14 (breytt kl. 21:18) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 20. janúar 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.5.): 2
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 118952
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 18
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar