Enn kastar tólfunum!

12Kastar nú tólfum hér
keyrir úr hófi.
Í vögnunum títt ég er
á einhverfurófi.

Hinn glaðhlakkalegi & guðdómlegi dr. Gylforce hefir gengið rösklega til vagna sinna, hvar hann hitti raunar aðeins fyrir eina leið í gær að þessu sinni, leið 12.

Hin tólfta leið er ein þessara leiða sem hefir verið stöðugt í sókn enda góður kostur fyrir oss vagnverja til að komast t.d. frá Mjódd að Hlemmi með viðkomu á Kirkjusand eða Borgartún. Nú, eða öfugt - maður lifandi!

Tímatöflur leiðarinnar hafa aðeins verið að stríða okkur vagnverjum. Þær tóku breytingum í janúar & vonandi nær vagninn að halda betur áætlun á komandi misserum.

Kynnisferðir annast aksturinn & buðu upp á a.m.k. tvo spánnýja & spræka Iveco Crossway vagna á leið 12 & virðast allir 10 nýju vagnarnir þeirra vera komnir á fulla ferð á vígvöllum veganna. Hina má t.d. finna á leið 15. Hvað um það.

Amen.


Bloggfærslur 14. mars 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband