Rafvögnuð upplifun ...

youtongRafvögnuð upplifun
reynist vera án
upplýsingamiðlun-
ar, sem er ólán.

Hinn tormelti & treggáfaði dr. Gylforce tókst loksins að finna hinu nýju kínversku rafvagna á vígvöllum veganna. Hibb-hibb-húrrey!

youtong 2Dr. Gylforce sá hina rafvögnuðu upplifun á leiðum 2 & 4, líkt & í gær, & einhenti sér í tvistinn við Mjódd okkar Breiðhyltinga. En ekki hvað???

Það var unaður að finna þegar vagninn lagði af stað. Hljóð- & áreynslulaust leið sá alguli úr austri um sel okkar Breiðhyltinga, ók svo upp í efri byggðir Kópavox & niður að Smáralindinni. Magnað!

a-rafÞað eina sem vantar nú upp á - a.m.k. í 194 rafvagninum - er upplýsingataflan & hin íðilfagra rödd Herdísar Grýlu - næsta stopp er ...

Það er skrýtið að taflan sé ekki enn komin upp en vonandi kippir Strætó bs. því í liðinn í snarhasti.


Bloggfærslur 15. maí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband