Unaður er & andagift
ekkert bölv & ragn,
er eg hef löppum lyft
inní ljúfan strætisvagn.
Hinn dökkgræni & dulræni dr. Gylforce dreif sig á leið & langaði doksa kallinum að dangla með leið 2 frá Mjóddinni inn í Voginn fagra. Nema hvað.
Dr.-inn átti stefnumót við tvistinn kl. 18:02 við Mjódd okkar Breiðhyltinga. Það reyndust mikil vonbrigði er vagninn silaðist að endastöðinni um kl. 18:11, heilum níu mínútum of seinn. Maður lifandi!
Aukinheldur stoppaði leið 2 þar sem leið 24 nemur ætíð staðar & rauk svo af stað án þess að fara nokkur tíma í sitt rétta stæði. Stórfurðulegt en hvað um það.
Nýr vagn leit dagsins ljós á leið 2, 131 Iveco Crossway. Doksi kallinn var eigi í för með honum því hann ók í gagnstæða átt.
Dr.-inn þarf að gera honum betur skil síðar. Aukinheldur hlakkar doksa til þegar tímatafla leiðar 2 verður lagfærð en það gerist á næstu dögum þegar sumartíðnin fer í gang.
Það er löngu tímabært enda tvisturinn búinn að vera í tómu tjóni frá áramótum.
Yfir&út!
Bloggar | 23.5.2018 | 22:36 (breytt kl. 22:39) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. maí 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.5.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 7
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar