Endurnýjun flotans ...

131Flikkum nú upp á flotann
fáum nýja smíð. 
Í nágrenninu not´ann
í náinni framtíð.

Hinn nöturlegi & napri dr. Gylforce náði einum spánnýjum vagni frá byggðsamlaginu í kvöld, hvar 131 Crosswayvagninn var til taks við Hlemminn á leið 18.

Inn vildi dr.-inn!

131-3Það er mikið fagnaðarefni að Strætó bs. sé ekki einungis að festa fjár í rafvögnunum frá Kína, heldur hyggst aukinheldur halda áfram að bæta við "venjulegum" vögnum.

Dr. Gylforce hefir rekið glyrnur sína í tvo glænýja slíka vagna, 130 & 131 - & máske eru þeir fleiri???


Bloggfærslur 24. maí 2018

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband