Hinn léttleikandi & ljúfi dr. Gylforce ákvað að gjörast Göngu-Hrólfur á hvíldardeginum, hvar hann stjáklaði um í heimabyggð sinni. Nema hvað.
Dr.-inn spígsporaði um holtin breiðu & fann bæjarstæði hvar Breiðholtsbærinn stóð forðum aukinheldur sem bænhús var þar helgað hinum heilaga Blasíus. Hvað um það.
Gylforce-inn gekk hröðum skrefum, eptir að hafa drekkt í sig þennan fróðleik, að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Leið 12 áði í báðar áttir & vitaskuld var málið þar með steindautt.
Eptir þrammið, þráin gaus
þetta var nú streð.
Í vagna orðinn viðþolslaus
ég varð að fara með.
Hollendingurinn bilandi, VDL, var til taks bæði niðrúr & inneptir & ákvað doksi að fara í miðbæðinn með leið 12.
& tilbaka í selið fagra fékk dr. Gylforce líka hinn hollenska VDL-vagn.
Bloggar | 25.6.2018 | 09:57 (breytt kl. 14:34) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 25. júní 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar