Fækka hjá fjórtán
fjölga hjá þrettán.
Lán eða ólán
lukka eða áþján?
Hinn vel spennti & fráleitt spánnýi dr. Gylforce hefir spáð & spekúlerað í þær fréttir sem honum hefir borist til eyrna.
Nú ku vera uppi hugmyndir um að breyta leið 14 þess efnis að vagninn hætti að fara framhjá Háskóla Íslands á leið sinni út á Granda & að Verzlunarskóla Íslands.
Það virðist vera góð hugmynd hvar þrjár aðrar leiðir, 1,3 & 6, fara þennan spotta. Verji úr Háskólanum getur tekið eina af þessum leiðum & farið svo út við BSÍ. & svá öfugt, hægt verður að taka vagninn við skólann & fara út á Fríkirkjuvegi á leið sinni út á Grandagarð.
Með þessari ráðstöfun er mögulegt að fækka um einn vagn á leið 14 & færa hann yfir á leið 13 án verulegrar kostnaðarhækkunar.
Hin þrettándi leið, Sléttuvegur-Eiðisgrandi, hefir átt í miklum erfiðleikum með að halda áætlun, einkum seinni part dags. Gott verður því að fá inn aukavagn.
Myndir: citybus.piwigo.com
Bloggar | 26.6.2018 | 13:43 (breytt kl. 13:52) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 26. júní 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar