Stóran hring eða stutta ferð
strætisvagninn gefur.
Kætir meir en kvæðagerð
komur sjaldan tefur.
Hinn bolalegi & brokkgengi dr. Gylforce brá sér á leið í blíðunni. Doksi kallinn fékk sér til fulltingis einungis flæmska vagna að þessu sinni & stoppaði í þeim stund stutta - maður lifandi!
Dr. Gylforce gekk ásamt litla vagnverjanum úr gettóinu yfir í kópvægskar koppagrundir. Þeir höpðu í hyggju að skella sér í leið 28 við Hvammsveginn & halda að þessu sinni í stutta ferðir með hollensku VDL-vögnum þeirra Kynnisferða. Nema hvað.
Ferðir feðga gengu afar vel & ber að hrósa vagnstjórunum fyrir að vera tímanlega & tímajafna vagnana þegar þeir voru komnir á undan áætlun.
Hinsvegar voru fáir vagnverjar á ferli eins & jafnan er á hvíldardegi þessum.
Á morgun, mánudag, má svá aptur búast við handagangi í öskjunni á vinum vorum, vögnunum.
Yfir&út!
Bloggar | 26.8.2018 | 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 26. ágúst 2018
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 11
- Frá upphafi: 118903
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar