Lagt á leið ...

35530041082_e31573b9bd_b (1)Nýja gula nota ég vil
njóta, sitja, slaka.
Í ellefunni ekki skil
öngva hægt að taka!

Dr. Gylforce gekk vitaskuld hnarreistur & með reistan makka til vina sinna - vagnanna - i gær, hvar hann langaði að sjá hvurt nýju vagnarnir væru komnir á leiðir 11 & 13. Nema hvað.

Doksa kallinum hefir borist til eyrna að verktakinn suður í Firði hafi í fórum sínum fjóra nýja Iveco Crossway vagna. Jibbíkóla!

Vonandi situr hann ekki lengi á slíkum unaði en Gylforce-inn gat ekki séð einn einasta á vígvöllum veganna í gær. Illu heilli.

Dr. Gylforce gerði sér títt far með ellefunni & fylgdist aukinheldur vel með leið 13 aka til & frá Hlemmtorgi. Á leiðum þessum var einungis hinn níu ára gamli Irisbus í boði fyrir utan Iveco-gæðing þennan á myndinni á leið 11. Hvað um það.

Vonandi halda þeir á vígvellina hið fyrsta. Koma svoooooo!


Bloggfærslur 17. janúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband