Þrásinnis ég vonandi verð
í vögnunum glaður.
Nú Hverfisgata er nýuppgerð
- nautnalegur staður!
Oflátungurinn & ofvitinn dr. Gylforce er yfir sig hrifinn, hvar loksins hillir undir að vinir vorir - vagnarnir - aki um Hverfisgötuna á nýjan leik.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Strætó hefja sex leiðir akstur um eina að höfuðgötum borgarinnar 8. desember nk. Það er vel.
Hverfi skatan á ný
Leiðir 1, 6, 11, 12, 13 & 14 koma til með að keyra upp & niður Hverfisgötu. Sums staðar er gatan þröng & því mikilvægt að fara varlega þegar vagnarnir mætast. Nema hvað.
Leið 3 - leið doktorsins - heldur áfram að aka Sæbrautina enda nauðsynlegt að einhver strætisvagnaleið stoppi sem næst hinni fögru Hörpu.
Amen.
Samgöngur | 30.11.2019 | 08:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. nóvember 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.5.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar