Vesen á verktaka ...

51007069_280380269325985_7674676189344038912_nMikil er hér handvömm
hjá verkstæði.
Gert með skít & skömm
skortir hrein gæði.

Dr. Gylforce varð heldur dapur í vögnum gærdagsins, hvar einn fallegur vagn frá verktakanum inn við sundin var ekki eins & hann á að sér. Nema hvað.

Gylforce-inn gekk hröðum & glöðum skrefum inn í leið 21 í Firðinum & hitti fyrir 337 vagninn. Doksi tyllti sér í eitt af öptustu sætunum & blasti þá þessi ófagra sjón við.

Tvö sæti vantaði í vagninn & viðgerðarmennirnir ákváðu að taka ekki gulu stöngina sem er þarna eins & álfur út úr hól. Usss-usss.

Menn hljóta að geta gert betur en þetta hvað frágang varðar þegar baksa þarf við vini vora, vagnana.


Bloggfærslur 1. febrúar 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband