Á göturnar nú viljum við
vetni, rafmagn & metan.
Jörðinni okkar gefa grið
svo göfgist hér búsetan.
Hinn umhverfisvæni & unaðslegi dr. Gylforce hefir nú eitthvað fatast flugið við lesningu á fundargerð byggðasamlagins á dögunum, hvar honum fannst að á leiðinni væru metanvagnar.
Það má þó vel vera & vonandi fáum vér vagnverjar sænska Scania metanvagna líkt & Norðlendingar brúka.
Hinsvegar hyggst Strætó bs. taka þátt í vetnisverkefni er ber heitið Joint Initiative for hydrogen Vehicles across Europe (JIVE II FCH-JU EU) á vegum Evrópusambandsins, ESB.
Það er því að vænta vetnisvagna á þessu ári - jibbíkóla!
Dr.-inn man vel eptir síðustu vetnisvögnunum sem voru hér rétt upp úr aldamótunum 2000. Þrír Daimler-Benz vagnar brunuðu um hið lostfagra leiðakerfi & fannst doksa kallinum vagnar þessir framandi en fallegir.
Það verður spennandi að sjá hvernig nýju vetnisvagnarnir koma til með vera - maður lifandi!
Bloggar | 26.4.2019 | 20:46 (breytt kl. 20:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 26. apríl 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.5.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 118911
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar