Mígandi mannleysa ...

61445724_427405004723258_5798605457652187136_nVið stýrið mikil mannleysa
sem var meðvitundarlaus.
Vagnstjóra kát´ & kurteisa
kýs ég heldur en rasshaus.

Aldrei þess vant segir Stútulautardoktorinn, Herrn Gylforce, farir sínar eigi sléttar með vinum vorum, vögnunum í þessari einmunablíðu sem lék um höfuðborgarsvæðið í dag - maður lifandi!

Dr. Gylforce var seinn fyrir í Hamraborgina háu & fögru, hvar hann vildi inn í leið 4 áleiðis að Mjódd okkar Breiðhyltinga. Dr.-inn hljóp & mætti á slaginu 36 mínútur yfir heila tímann en þá leggur vagninn einmitt úr vör. 

Dr.-inn náði á slaginu & bankaði á framdyrnar á 136 Irisbus-inum sem var á leið 4. 

20140831123330-5c006d5c& hvað gerðist? Vagnstjórinn var í sama mund að snúa stýrinu & líta í hliðarspegilinn. Hann sneri sér að dr.-num, leit á hann sem snöggvast & brunaði svá af stað!!!

Vagnstjóranum var í lófa lagið að opna hurðina & hleypa dr.-num inn; hepði tafið för vagnsins um 5 sekúndur.

Vel má vera að í verklagsreglum Strætós eigi ekki að hleypa vagnverjum inn eptir að vagn er farinn af stað en slíkt var einfaldlega ekki uppi á teningnum í þessu tilfelli.

131Gylforce-inn missti því af ferð þessari en vissi að sami vagn yrði í Hamraborginni um klukkustund síðar eptir ferð í Mjóddina & hring um Breiðholtið. Doksi kallinn skellti sér því í skeggsnyrtingu á meðan & ætlaði svá að lesa vagnstjóranum pistilinn á leið 4 - en ekki hvað???

Þvilík mígandi mannleysa! 

& það stóð heima. Vagninn áði í Hamraborg klukkutíma síðar en í millitíðinni hapði dr. Gylforce gerst miskunnarsamur vagnverji, róað sig niður & lét nægja að gefa sköllótta vagnstjóranum með sítt skegg & speglasólgleraugu aðeins illt auga í þetta skiptið.

En ruglið hélt áfram. Leið 4 rauk af stað úr Hamraborginni 34 mínútur yfir heila tímann sem er einni mínutu of snemma. Dr.-inn sá verjana hlaupa á eptir vagninum & ætlaði hann heldur betur að öskra á vagnstjórann. Hvur fjandinn gengur hér á???

Vagnstjórinn varð fyrri til að stöðva - góðu heilli - & hleypa verjunum inn. Svá brunaði hann af stað líkt & öngvinn væri morgundagurinn & var mættur á mettíma að Hlemmtorginu. 

Já, þvílík mígandi mannleysa.


Bloggfærslur 23. maí 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband