Ugglaust eins & stór hluti þjóðarinnar fylgdist dr. Gylforce með sjónvarpi Alþingis í nátt & síðustu nátt. Nema hvað.
Doksi kallinn hapði meðferðis popp & sódavatn (Maxlaus mánuður) & fylgdist agndofa með eldræðum & orðkynngi þingmanna Miðflokksins. En ekki hvað??? Hver vill missa af þessum munaði???Steini Sæm & Doktorinn*
spjalla ei við aðra.
Umræðan er orkupakkinn
endalaust þeir þvaðra.
Inn í salinn Simmi Dé
syfjulegur með bauga.
Ekkert veit hvað er að ske
alls staðar sér drauga.
*Dr. Ólafur nb. (ekki dr. Gylforce)Hvar dr. Gylforce er víst úr holdi & blóði þurfti hann á hvíld að halda eptir þennan mergjaða málflutning Miðflokksmanna & var þá fátt betra en að halda á vit vagna; halda í griðland Gylforce-ins.
Dr. Gylforce kom sér í kynni við leið 13 - eða þrettándann svokallaða - eptir kennslu í mennta- & menningarsetrinu & dormaði doktorinn títt & ótt meðan vagninn leið um vesturbæ þeirra Reykvíkinga & safnaði kröptum. Nema hvað.
Leið þrettán þaut
- þýðlega
Var á beinni braut
- bráðlega
Vagnverjanna naut
- vandlega
Glyrnum mínum gaut
- glaðlega
Hitti þá fúlan faut
- fljótlega!
Myndir: mbl.is & citybus.piwigo.com
Samgöngur | 29.5.2019 | 09:12 (breytt kl. 09:29) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bloggfærslur 29. maí 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 124135
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar