Dýrðlegir dagar framundan ...

137FA52A 25E9 41D4 8D28 B6A5415ED977Af stað er hrint hinsegin
með hátíðarvagni.
Í göngunni ég öreiginn
arka mun með lagni.

hinsegin-dagar-5-1024x683Gleðirendur, prjál & glys
glingur í miklu magni.
Um alla borg ys & þys;
endum fjör í vagni.

38501262_1740872745982314_863428476789587968_oHinsegin dagar eru hafnir í henni Reykjavík & góðu heilli tekur Strætó bs. fullan þátt í þeim í þriðja sinn. En ekki hvað???

Strætó hefir skreytt fallega 107 rafvagninn & vonandi sést hann á sem flestum leiðum næstu daga. Nema hvað.

Margt & mikið verður um að vera á Hinsegin dögum og munu þessir dýrðardagar ná hámarki með gleðigöngunni margrómuðu hinn 17. ágúst næstkomandi.

Vonandi njóta vagnverjar allra litbrigða lífsins meðal vagna & fjölbreytileikanum megi þeir hvarvetna í hvívetna fagna.

Amen.


(næst efsta mynd: dv.is, hinar: straeto.is)


Bloggfærslur 10. ágúst 2019

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband