Vandræði helvítis herjans
hægagangur & slen.
Vonbrigði eru vagnverjans
vonandi skánar - amen!
Hann var heldur rislítill & raunalegur doktor Gylforce eptir vagnaferðir morgunsins, hvar margt vakti furðu í ferðum hans. Nema hvað.
Dr.-inn gekk galvaskur að skýli sínu við Stútulautarselið um kl. 7:25 & ætlaði að skella sér í leið 4. En ekki hvað???
Það gladdi hið gamla hró dr.´s hvar sænskættaður 114 Scania Omnilink kom askvaðandi en var merktur sem leið 3 - aukavagn!!!
Ef dr. Gylforce væri nýr vagnverji að taka vagn í fyrsta sinn myndi hann ugglaust reka upp stór augu ef leið 3 kæmi í biðskýli hvar eingöngu tímatafla er fyrir leið 4. Dr.-inn hefir minnst á þetta áður, þetta er ruglingslegt en vagninn ekur frá Mjódd niður í miðbæ sem leið 3 en um Breiðholtið sem leið 4.
Dr. Gylforce skipti um vagn í Mjódd okkar Breiðhyltinga & fékk 186 Crossway vagn á fjarkarnum. Það virtist varla renna blóðið í vagnstjóranum á þeirra leið; vagninn ók hægt, hann var lengi að fara af stað á hverri stoppistöð enda skilaði hann vagninum tveimur mínútum of seint í Hamraborgina - illu heilli!
Dr.-inn missti því af leið 36 er hann hugðist taka. Vagnstjórinn á þeirri leið var hinsvegar í lófa lagið að hinkra í nokkrar sekúndur því vagninn var á brúnni á Digranesveg, beint á móti leið 4.
En nei, hvarflaði ekki að honum að horfa til hliðar & velta því fyrir sér að mögulega ætlaði einhver að hoppa úr leið 4 yfir í leið 36.
Dapurt & vart til þess fallið að auka ánægju vagnverja eða fjölga þeim.
Bloggar | 4.9.2019 | 12:40 (breytt kl. 12:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 4. september 2019
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.5.): 1
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 13
- Frá upphafi: 118905
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar