Stórgóð keppni fer af stað
stemmning eins& sportið.
Vagnverja fyrir - nema hvað
sem vinna árskortið.
Nafnasamkeppni
Mínir virðulegu vagnverjar!
Nú er röðin komin að ykkur. Nafnasamkeppni á heildar greiðslukerfi sem Strætó hyggst koma á legg er hafin. Eins & segir í frétt frá Strætó mun nýja greiðslukerfið veita aðgang í Strætó á höfuðborgarsvæðinu og Borgarlínu. Aukinheldur eru áætlanir uppi um að kerfið greiði leið að fleiri vistvænum samgöngumátum eins og hjólaleigum og deilibílum og jafnvel enn frekari þjónustu í framtíðinni.
Fyrirmyndir af korti þessu eru t.d. frá London með Oyster-kortinu, Rejsekort í Kaupmannahöfn og OV-chipkaart í Amsterdam.
Koma svo vagnverjar - leggið höfuðið í bleyti & komið upp með skemmtilegt nafn.
Illu heilli getur dr. Gylforce ekki tekið þátt í þessu hvar hann situr í dómnefndinni. Og verðlaunin eru ekki af verri endanum - árskort í unaðinum - maður lifandi!
Samgöngur | 13.2.2020 | 08:14 (breytt kl. 09:04) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. febrúar 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (5.7.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar