Keyrt af leið á Kjalarnesi ...

707700Bálhvasst nú fyrir blágulu
af braut fór einn alveg.
Snælduvitlaust í snjóhulu
snérist út af veg.

Enn lenda hinir blágulu vagnar landsbyggðarinnar í kröppum dansi á Kjalarnesi. 

Svæðið er vitaskuld alþekkt fyrir vind & hviður en góðu heilli voru aðeins þrír vagnverjar um borð að þessu sinni.

fr_20150310_010069Aukinheldur er það nokkuð spaugilegt að verktakinn suður í Firði, sem annast þá blágulu, sendi á vettvang einkabíl enda einvörðungu þörf á því að gefa þremur vagnverjum far í bæinn.

Kjalarnes

 


Bloggfærslur 27. febrúar 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband