Sjaldséðir eru hvítir vagnar ....

89324603 502666027083243 7651372126292672512 nEkur um með hýrri há
á hreinleika þýtur.
Í grenndinni fer framhjá
fákur þessi er hvítur.

Loksins, loksins gat dr. Gylforce lagt leið sína í hinn hvíta metanvagn á leið 3. Áður hapði dr.-inn komist í kynni við vagn þennan en þá á öðrum leiðum.

Hinn sænskættaði brást ekki frekar en fyrri daginn & hélt vel áætlun & skilaði dr.-num tímanlega - en umfram allt örugglega - á leiðarenda.

88370911 227242338401197 7343800387125641216 nSprittbrúsi var til taks á vagninum - en ekki hvað - sem fyllti vagnverja öryggiskennd hvar vagnstjórinn spreyjaði létt úr honum í laufléttri tímajöfnun í Mjódd okkar Breiðhyltinga. 

Annar hvítur, 102 vagninn, er aukinheldur kominn á vígvelli veganna en illu heilli hefir dr. Gylforce ekki farið á fjörurnar við þann hreinleika.

Amen.

75210707_731410750693027_2556155189283258368_n 


Bloggfærslur 10. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband