Inn fara allir baka til
svo ekki smitist þú.
Muna að hafa mikið bil
maka vel spritti nú!
Inn að aptan
Stjórn Strætó bs. hefir fundað vegna veirunnar válegu & hefir gefið út reglur til handa oss vagnverjum.
Til að verja vagnstjórana verður framhurð vagnanna lokuð frá & með mánudagsmorgni & ætlast til að allir fari inn um mið- & apturhurðir.
Eðlilega verður erfitt að fylgjast með greiðslum en hér verður bara að biðla til vagnverja að vera heiðarlegir & greiða fargjaldið góða nú sem endranær.
Vonandi taka vagnverjar vel í þessar nýju reglur aukinheldur sem mælst er til að verjar ferðist utan annatíma hafi þeir tök á.
Framhalds- & háskólar verða lokaðir í næstu viku & því sjálfgefið að færri verði í vögnunum sem gefur hinum tækifæri á að hafa tveggja metra millibil til þess að forðast smit.
Yfir&út!
Samgöngur | 13.3.2020 | 18:28 (breytt kl. 18:30) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nú metrar á milli tveir
munum vel eptir því
svo meinið dreifist ei meir
& menn lendi í sóttkví.
Nú þegar stjórnvöld hafa sett miklar takmarkanir á samkomur í landinu en vert að huga að vinum vorum - vögnunum.
Það er ljóst að vagnverjar verða að hafa tveggja metra millibil í vögnunum næstu fjórar vikurnar. Hvernig því verður framfylgt er ekki gott að segja um á þessari stundu nema að hvetja verjana til þess að gæta að þessum hlutum.
Líklega verða sett upp áberandi tilkynningar í alla vagna en Strætó bs. er í þessum töluðu orðum að undirbúa aðgerðir varðandi almenningssamgöngur í landinu.
Förum varlega vagnverjar. Sjálfur mun dr.-inn lítið notast við vini sína þessa daga - illu heilli.
Samgöngur | 13.3.2020 | 12:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 13. mars 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Maí 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.5.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 22
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar