Vörubíll straujaði vagn ...

1196511Illa leikinn vagninn var
vörubíll fór betur.
Þetta er meira ófremdar- 
ástandið í vetur.

Vagninn illa leikinn

Betur fór en á horfðist þegar vörubíll straujaði afturhlutann á einum vagni sem var á leið 11 á Nesveginum nú síðdegis. Nema hvað.

1196512Aðeins tveir vagnverjar voru um borð & góðu heilli voru þeir framarlega & hinumegin í vagninum þegar óhappið varð.

Ugglaust eru færri verjar um borð í vögnunum þessa dagana vegna ástandsins & kom það sér einstaklega vel að þessu sinni. 

Ef glyrnur Gylforce-ins svíkja hann ekki er hér um að ræða um 10 ára gamlan vagn frá verktakanum suður í Firði & því spurning hvort hann fari nokkuð aptur á vígvelli veganna eptir þetta hressilega hnjask???

 


Bloggfærslur 19. mars 2020

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband