Borgarlínan breiðist út
breytast okkar ferðir.
Munu stúrir setj´upp stút
stöðumælaverðir???
Þrátt fyrir faraldur, farsótt & fár halda samgönguverkfræðingar Borgarlínunnar ótrauðir áfram verki sínu, hvar þeir gáfu út á dögunum athyglisverða skýrslu.Nema hvað.
Verk- og matslýsing BorgarlínuMargt er allra athyglivert í skýrslu þessari. Ein mesta áskorun sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í skipulagsmálum er efalítið að reyna að breyta ferðavenjum innan höfuðborgarsvæðisins, stuðla að orkuskiptum í samgöngum og draga úr kolefnisspori samgangna.
Gera þarf almenningssamgöngur eftirsóknarverðar með öflugu þjónustustigi (með þéttri tíðni), sérrými í gatnakerfinu & góða flutningsgetu með umhverfisvænum vögnum. Allt þetta hefir Borgarlínan.
Þá er aukinheldur fróðlegt að sjá að fyrsti áfangi línunnar, þ.e. Hamraborg-Ártún leiðin í gegnum Kársnes, BSÍ, Lækjartorg, Hlemm, Suðurlandsbraut & Voga á að vera tilbúin árið 2023.
Á næsta ári eiga því breytingar varðandi aðalskipulag Reykjavíkur & Kópavogs að vera lokið & þá ekkert því til fyrirstöðu að hefja útboð og framkvæmdir.
Takk fyrir túkall!
Lífstíll | 21.4.2020 | 12:45 (breytt kl. 12:46) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 21. apríl 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 124132
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar