Kjarnastöðvar koma inn
kætist ég nú pínu.
Fiðringinn nú þegar finn
fyrir Borgarlínu.
Í Borgarlínunni verður stoppistöðvum skipt í tvennt; kjarnastöðvar & aðrar stöðvar.Ein kjarnastöð verður í fyrsta áfanganum í Voginum fagra, staðsett í Hamraborginni. Aðstaða & aðgengi þar verður mun betra fyrir oss vagnverja en annars staðar aukinheldur sem við kjarnastöð eiga bæði strætisvagnar & Borgarlínan að stoppa & gott pláss á að vera fyrir reiðhjól.
Auk þess er stefnt að því að þétta byggð í námunda við stöðvarnar, hafa verslanir & þjónustu innan seilingar & jafnvel bílastæðahús.
Í því sambandi er vert að minnast áætlana Kópavogsbæjar um mikið byggingamagn í hjarta Kópavogs. Töluverð andstaða er um þær fyrirætlanir & verður fróðlegt að sjá hvernig því máli framvindur.
Meira um það síðar.
Gleðilegt sumar vagnverjar!
Samgöngur | 23.4.2020 | 10:39 (breytt kl. 10:40) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 23. apríl 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (14.9.): 3
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 124132
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar