Um Borgarlínu bloggað skal
er bætir allt aðgengi.
Falleg sýning í góðum sal
sit ég þar æðilengi.Óhætt er að fullyrða að sýning sú sem nú er senn á enda í Ráðhúsi Reykjavíkur sé ein sú albesta sem dr. Gylforce hefur nokkurn tíma auga litið á. Maður lifandi!
Sýningin "Næsta stopp" sýnir fyrirhugaða Borgarlínu á afar skýran & einfaldan hátt. Eiga aðstandendur sýningarinnar miklar þakkir skildar fyrir þessa framsetningu.
Eins & gefur að skilja hefir dr. Gylforce verið þarna líkt & eilífur augnakarl. Hann hefir notið þess hvarvetna í hvívetna að hafa samgönguverkfræðing sér við hlið & geta spurt hann spjörunum úr. En ekki hvað???
Sýningunni lýkur á miðvikudagskvöldið. Dr.-inn hvetur vagnverja til að rölta inn í Ráðhúsið & sjá þessa mikilfenglegu sýningu en næstu daga mun doksi kallinn efalítið blogga meir um þessa samgöngubyltingu sem er innan seilingar. Nema hvað.
Yfir&út!
Samgöngur | 22.6.2020 | 21:13 (breytt kl. 21:15) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 22. júní 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124133
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar