Gylforce-inn vill út að Granda
mjög gott með leiðum tveim.
Vagnverjinn ungi með að vanda
Valdís er okkar geim.
Hinn ungi & aldni vagnverji gerðu sér góðan dag í vinum vorum - vögnunum - í brakandi blíðu hvar þeir héldu í afar góðan & skjótan rúnt út að Granda. Nema hvað.Ferðin úr Mjódd að Granda er ákaflega góð & passa vagnarnir mjög vel saman. En ekki hvað???
Ef farið er með leið 3 úr Mjódd okkar Breiðhyltinga er aðeins um 1-2 minútna bið á Lækjartorgi eptir leið 14 sem heldur rakleitt út á Granda.Ferðatíminn er aukinheldur ekki af verri endanum; aðeins rúmlega 20 mínútur í unaðsvögnum & ekki spillti fyrir að þeir feðgar skelltu sér á rafskútur & geystust um lendur Grandans á þessum mögnuðu tækjum.
Yfir&út!
Samgöngur | 27.6.2020 | 21:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Um þig skal ég á dimmri nóttu dreyma
dásemd ertu, hvar sem er.
Þig skal ég, vagn, í vitum mínum geyma
því vel þú tekur á móti mér.
Árið 2020 er tileinkað ljósmæðrum og hjúkrunarfræðingum í tilefni af 200 ára afmælis Florence Nightengale.
Ljósmæðrafélag Íslands ákvað því að stökkva á eina góða auglýsingu á rafvagn sem er afar vel til fundið. Vagninn er fagur mjög & hefir aðallega verið í akstri á leið 18, frá Hlemmi að Spöng um Grafarvog og Grafarholt. Nema hvað.
Dr. Gylforce vonar að ná að klófesta rafvagn þennan við fyrsta hentugleika.
Yfir&út!
Við tökum vel á móti þér
Samgöngur | 27.6.2020 | 00:05 (breytt kl. 00:08) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 27. júní 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124133
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar