Kom blíðmáll, þú blíði vagn
blessaður sé þinn hringur.
Megi þú ávallt gera gagn
á götunni þú syngur.
Hinn ungi & aldni vagnverji herjuðu á vini vora - vagnana - í brakandi blíðu gærdagsins - hvar þeir þrömmuðu í þrjár eðalleiðir á höfuðborgarsvæðinu. Maður lifandi.Feðgarnir fóru á fjörurnar við leið þrettán en ár & dagur er síðan doksi kallinn hefir komist í kynni við leiðina þá. Ó, já.
Það gladdi hró hans hve vel vagnstjóranum á hinni þrettándu leið tókst að halda áætlun. Hinn ungi & aldni höpðu gengið um stund & reynt við rafskútur en sáu svá vagninn við Lönguhlíð & gengu inn. Nema hvað.
Næst var á dagskrá að einhenda sér & arka inn í ellefuna & halda rakleitt í Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar vér feðgar tókum lengri leiðina með fjarkanum alla leið í fegursta Stútulautarselið í seljahverfinu. En ekki hvað???
Yfir&út!
Samgöngur | 30.6.2020 | 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fyrr í kvöld bárust gleðileg tíðindi frá Austurvelli, hvar alþingismenn samþykktu samgönguáætlun til næstu 15 ára fyrir litla 120 milljarða. Maður lifandi!
Inn í þessu eru lög sem heimila ríkinu að stofna hlutafélag með sveitarfélögunum sex á höfuðborgarsvæðinu um Borgarlínuna.
Um línu þessa eru afar skiptar skoðanir & hægt að lesa um það út um allt í netinu. Eðlilega eru alls konar sjónarmið á lopti enda rándýr framkvæmd hér á ferðinni sem mun aðeins að hámarki ná um 12%-15% af heildarferðum á höfuðborgarsvæðinu ásamt Strætó.Stefnt er aukinheldur að því að gangandi, hjólandi, rafskútur o.þ.h. verði um 21% af ferðum & einkabíllinn - sem mörgum er svo annt um - verði um 65-67% af öllum ferðum en ekki 92% eins & staðan er núna.
Nú hefst fjármögnun verkefnisins af fullum krafti & verður fróðlegt að sjá hvernig þessi græna innviðaruppbygging kemur til með að falla í kramið hjá höfuðborgarbúum.
Dr. Gylforce bíður spenntur.
Loftslagsmál, aukin lífsgæði
losna fjölmörg bílastæði
því Borgarlínan er bæði
til bóta & algjört æði!
Yfir&út!
Samgöngur | 30.6.2020 | 00:09 (breytt kl. 00:11) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. júní 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124133
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar