Inn að aptan hér við lýði
öngvin er véfrétt.
Vilja bara hlýða Víði
vagnstjórum er létt.
Það hefir vakið gjörhygli Gylforce-ins hvar enn er oss vagnverjum meinað að ganga inn í vagnana hér nyrðra að framan vegna Covid-19.Hvers vegna það er enn við lýði hér í höfuðstað Norðurlands er dr. Gylforce ekki kunnugt um, en öngvu að síður skapar þetta lítið vandamál hvar gjaldfrjálst er í vagnana.
Vagnverjarnir geta valsað inn & út að aptan & hefir það lítil áhrif, ólíkt byggðasamlaginu fyrir sunnan en þar þvældist greiðslan eilítið fyrir í framkvæmdinni. Hvað um það.
Annars er vagnakostur Strætisvagna Akureyrar með miklum ágætum. Undanfarin ár hefir flotinn verið endurnýjaður & er t.d. möguleiki á að hafa 75-100% af vögnunum sem eru í umferð metanvagna.
Það er glæsilegt - & sænskættaðir í þokkabót!
Samgöngur | 14.7.2020 | 22:47 (breytt kl. 22:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er hann kom í höfuðstað
hjá Norðlendingi.
Strax í metan - en ekki hvað?
Indæla fór hringi. Sjúklegum álnum situr í
sá guli er sko hnoss.
Ábyggilegur um borg & bí
brosmildur er Gylfoss.
Hinn ungi & aldni vagnverji voru vart komnir inn Eyjafjörðinn, hvar þeir einhentu sér um hæl í hina sænskættuðu metanvagna hér nyrðra. Unaður.
Reyndar var aðeins leið 6 á vaktinni líkt & Oddeyringar hafa um helgar. Leiðin sú fer um nær allar lendur nyrðra & er fyrirtaks "sightseeing" um höfuðstað Norðlendinga. Nema hvað.
Samgöngur | 14.7.2020 | 15:50 (breytt kl. 15:56) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 14. júlí 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 1
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 19
- Frá upphafi: 124133
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 19
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar