Í hús er komið kort
sem kætir mitt hró
& öll mín ljóð óort
eiga stund í strætó.
Dr. Gylforce frá Stútulaut fékk óskasendingu á dögunum, hvar árskort í vini vora - vagnana - kom í hús með sniglapóstinum geðþekka.
Dr.-inn beið öngvra boða & hélt rakleitt á vit vagna. En ekki hvað???
Allt virtist smella þetta annars hægláta & fallega haustkvöld, hvar Gylforce-inn hitti loksins á Jesúvagninn umtalaða er hann valhoppaði um hin breiðhylzku fell:Ég Jesúvagninn í fellum fann
fer þar um með Litháa.
Ríkti hann með sóma & sann
síðla hausts á landinu bláa.
Eptir yndislegar ferðir um Breiðholtið þvert & endilangt með leiðum 2,3,4 & 12 - & Gylforce-inn vitaskuld vopnaður grímu - var þetta orðið gott & kominn tími á koddann.
Góðar stundir vagnverjar!
Samgöngur | 30.9.2020 | 22:43 (breytt kl. 22:53) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Bloggfærslur 30. september 2020
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.9.): 3
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 21
- Frá upphafi: 124135
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar