Ég hefi ...

CAM00276
Hinn drafúldni en þó dásamaði dr. Gylforce drafaði nánast í vagnana - vini vora - á mánudaginn var hvar hann hitti fyrir hina þríheilöguðu þrennd; leið 28 - leið 4 - leið 35; eða öllu heldur; sænskættaður - meginlands - engilsaxneskur.

Allt var þetta samkvæmt skruddunni góðu & gafst doksa kallinum tóm til að stunda hugarrok & þankahríð í vögnum þessum. Dr.-inn hefir verið einstaklega lunkinn við að hreppa 140 Crossway vagninn á leið 4 & sat með honum frá Mjódd að Hamraborginni háu & fögru þennan annars ágæta mánudag. 

Urmull vagnverja var um borð í meginlandsvagninum sem leið þýðlega um gulu & gráu götu Smiðjuhverfisins & voru aksturseiginleikar vagnsins óviðjafnanlegir á Nýbýla-, Álfhóls- & Digranesveginum unz hann staðnæmdist við Hamraborgina.

Á kópvægskri grundu skeiðaði dr.-inn inn í hinn engilsaxneska á leið 35 & hélt rakleitt í lautina fögru.

Gylforce er skrýtinn og sköllóttur karl,
med skinnhúfu & segir "ég hefi"
& biksvart Maxið & brennivín
er það bezta sem honum er gefið.*       
 
*byggt á ljóði frá Kötlu-Jóa

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Fallegt er þetta alltsaman. Eg tók leið 1 i morgun,greiddi fyrir með beinhörðum,þetta er ss ekki gefins,miðum óðum að fækka og það fyrir 3000 kr.urnar!

Arnar (IP-tala skráð) 15.1.2014 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband