
Hinn eðlilegi & óþvingaði dr. Gylforce var maður eigi einsamall hvar hann boðaði þing hér í námunda við Hörðuvelli. Nema hvað. Doksi kallinn & hapði litla vagnverjann sér til fulltingis. Er þeir sáu hinn spánnýja & spennandi VDL-vagn koma á leið 28 biðu þeir öngvra boða.
Þeir feðgar gengu dreissugir & dramblátir um borð & hófu þegar talningu á vagnverjum & rannsóknir á innviðum vagnsins. Nema hvað. Um 10 vagnverjar stóðu sína plikt & áttu innstigin í vagninn eptir að tvöfalda þá tölu.
Þegar vagninn áði við Hamraborg okkar Kópvæginga vorum vér einhvörðungu þrír eptir & héldu sá gamli & litli þegar í næsta verkefni sem var meginlandsvagn númer 140 á leið 4.
Vagnstjórinn á leið 4 var ekkert að hafa fyrir því að bjóða þeim feðgum góðan dag heldur nikkaði kollinum & gaf þeim merki um að setjast hið snarasta. Svá ók hann nokkuð hart & stirrt að Mjódd þeirra Breiðhyltinga.
Víða var verjinn í Mjóddinni & urmull af vögnum. Dr.-inn skráði þetta allt samviskusamlega niður & sá litli æpti "eins" á suma vagna & á aðra "ekki eins". Greinilegt er á öllu að þeim stutta hefir tekist afar vel til að tileinka sér vagnarannsóknir á örskömmum tíma.
Dr. Gylforce rak lox sín haukfráu augu í hinn sænskættaða 303 vagn á leið 28. Ekki spillti fyrir að kynþokkafyllsta vagnstýran hélt - þéttingsfast en þó fimlega - um stýrið & ljóst var á öllu að ferð þessi gat eigi klikkað. Aukinheldur var gaman að fá enn & aptur að sitja í vöffunum tveimur; VDL & Volvo. Nema hvað.
Loforðin stóðu stóru
stemmning vögnum í.
Hringinn sinn feðgar fóru
& fengu vöffin tví.
Flokkur: Bloggar | 7.3.2014 | 22:59 (breytt 11.3.2014 kl. 09:11) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júní 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 |
8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 |
15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 |
22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 |
29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 33
- Frá upphafi: 123757
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 33
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.