Vísdómur án vagnaferða ...

129Hinn vísdómsfulli & viturlegi dr. Gylforce var heldur einmana & dapur í bragði í vinum vorum - vögnunum - í gær hvar hann tók greinilega eptir því að stúdíustræk er hafið í framhaldsskólum landsins. 

Dr.-inn sat í sænskættuðum Volvo-vagni meðal nokkurra vagnverja frá Hörðuvöllum að Mjódd þeirra Breiðhyltinga. Eptir það tók við óvenjuleg upplifun. Dr.-inn réðst til inngöngu í leið 4 & var eini vagnverjinn drjúga stund. Ár & dagur er síðan það gerðist síðast ef frá eru taldar ferðir snemmindis um helgar eða mjög seint um kvöld í hverfaleiðum. 

Doktor er í ferðum frómur
ferðast um laut & dal.
Þessa viku er vagninn tómur
vantar allt ungdómshjal.

Hvað um það. Dr.-inn áði við Hamraborg okkar Kópvæginga & hófst strax handa við stúdíur á hérvist okkar vagnverjanna. Nema hvað.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband