Hinn gegndrepa en þó gegnheili dr. Gylforce hélt gagngert á vit vagna um helgina hvar hann þráði setuna góðu í hinum sænskættaðu Scania Omnilink vögnum. Doksi kallinn valhoppaði út úr laut sinni & upp í Hamraborg okkar Kópvæginga & sá þar hinn sænskættaða. Þar beið hann öngvra boða.
Dr. Gylforce heilsaði 103 Omnilink með virktum & var vagninn sá þéttsetinn af vagnverjum & á leið leiðanna, leið 1. Vel kann að vera að þetta sumar verði hans síðasta hvar hann hefir verið á vígvöllunum í um 13 ár & endurnýjun flotans stendur fyrir dyrum. Hvað um það.
Dr.-inn hjó aukinheldur eptir því að hinir síðustu Scania Omnicity vagnar, númer 182-185, eru enn í umferð. Styður það & yrðingu hans um að þeir séu líka að fara að kveðja okkur vagnverjanna. Doksi verður að komast í nokkrar langdvalir með þeim áður en þeir hverfa. Nema hvað.
Þeir gulu oss svo gleðja
götum okkar á
er senn kominn kveðja
kúguppgefnum hjá?
Mynd: http://citybus.piwigo.com/
Flokkur: Bloggar | 18.6.2014 | 09:22 (breytt 19.6.2014 kl. 09:54) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.9.): 16
- Sl. sólarhring: 16
- Sl. viku: 35
- Frá upphafi: 124086
Annað
- Innlit í dag: 7
- Innlit sl. viku: 25
- Gestir í dag: 7
- IP-tölur í dag: 5
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.