Hinn baunski & bráðsnjalli dr. Gylforce brast nánast í grát hvar hann kom til kóngsins Köben & sá þvílíkan urmul af eðalvögnum; Scania Omnilink (2ja & 3ja hásinga), hinir sænskættuðu Volvo, VDL-vagnar & umhverfisvænir MAN vagnar. Hvert sem litið var bar fyrir augum ægifagrir vagnar & gladdi það hvarvetna hró dr.´s í hvívetna. Hvað um það.
Dr.-inn hélt sig eðlilega meðal portkvenna við Istegade & tók því einkum leiðir 10 & 14 er þar aka um aukinheldur sem A-lína númer tvö var líka í aðalhlutverki hjá doksa kallinum. Nema hvað.
Dr.-inn hélt sig eðlilega meðal portkvenna við Istegade & tók því einkum leiðir 10 & 14 er þar aka um aukinheldur sem A-lína númer tvö var líka í aðalhlutverki hjá doksa kallinum. Nema hvað.
Vagnar í kóngsins Köben
komandi gjörvallt.
Með þá Jensen & Jörgen
Með þá Jensen & Jörgen
& jullur út um allt!
Já, hinn vittugi & vel lesni vagnverji komst í hinar sjúklegu álnir hjá Baunanum, einkum með leið 14 eins & fyrr greinir. Þar voru vagnar ekki af verri endanum - maður lifandi. Hinn íðilfagri VDL-vagn var yfirleitt á þessari leið & á 12-13 mínútna fresti yfir daginn en datt svo niður í 20-30 mínútur á kvöldin.
Baunskir vagnverjar fjölmenntu optast í leið 14 & leið doksa kallinum á leið nánast eins & hann væri staddur á leið 28 hér í Voginum.
Dr.-inn hélt með vagninum frá Istegade að Enghavevej & svo aptur til baka. & svo aptur frá Istegade & svo aptur til baka. & svo aptur ...

Flokkur: Bloggar | 2.7.2014 | 11:00 (breytt 3.7.2014 kl. 07:25) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.9.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 32
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Treysti því að doktorinn muni hlaða inn myndasafni er inniheldur stútfylli vagnamynda frá Hafnarförinni :-) :-) :-)
Ásgeir S. (IP-tala skráð) 3.7.2014 kl. 09:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.