Þinglegt þrugl ...

20140831123227-46bf2e60

Hinn þjóðrækni & þingfasti dr. Gylforce hugðist gerast þaulsætinn í sófa sínum á miðvikudagskvöldið & horfa á imbakassann. Þar átti & að hefjast stefnuræða forsætisráðherrans & umræður á eptir. Spennandi. Nema hvað.

Dr.-inn skellti poppi í maskínuna & klaka í Maxið; nú skyldi gaumur gefinn með ráðamönnum þjóðarinnar & það af áhuga & áfergju!

Hinsvegar fékk doksi kallinn sig alveg fullsaddan af þrugli þingheims fljótlega & uppgötvaði sér til mikillar hamingju að stutt væri í að leið 35 myndi koma askvaðandi framhjá Stútulautinni. Málið dautt! 

Dr.-inn gafst upp á hinu háa Alþingi & hélt á vit vagna. Hinn sænskættaði 302 var að þessu sinni á leið 35 & fékk doksi nánast sérferð með honum að Hjallahverfi okkar Kópvæginga. Hvar voruð þið mínir virðulegu kópvægsku vagnverjar??? Allir að fylgjast með Simma Dé & Bjarna Bé??? Tæplega. 

Í Mjódd Breiðhyltinganna tyllti dr. Gylforce sér tignar- & tígulega í 134 Citelisvagninn sem ók leið 4 þetta annars ágæta miðvikudagskvöld. Margir vilja kalla dag þennan "vippudag" hvar maður nefninlega "vippar" sér úr fyrri hluta vikunnar yfir í þann síðari. Hvað um það.

Vagnstýran á Citelisvagni númer 134 - sem optast er á leið 2 - keyrði vagninn þýðlega um lendur kópvægskra Smiðja, Túna, Brekkna. Að lúkningu áði vagninn í Hamraborgina háu & tók þar góða tímajöfnun. 

Úr miðbæ Kópavogs hélt hinn geðþekki dr. Gylforce í þekktar stærðir. Amen.

Síþruglandi Simmi Dé
svo doksi hélt á leið.
Ekki skárri Bjarni Bé
bullandi silfurskeið! 

Mynd: citybus.piwigo.com/


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband