Hinn þengli & þjóðrækni dr. Gylforce fann til með vögnunum í gær þegar blindbylurinn geisaði á suðvesturhorni landsins. Maður lifandi.
Dr. Gylforce fylgdist grannt með fréttum & sá þar einn blágulan þriggja hásinga vagn fara út af við Kjalarnes. Sá hefir líklega verið á leið 57. Ekki tók betra við í sjónvarpsfréttum beggja stöðva hvar doksi kallinn sá að einn stuttur Heuilez vagn, annaðhvort númer 163 eða 165, lenti í óhappi á Kringlumýrarbrautinni á leið í Voginn.
Þá lentu vagnarnir í kröppum dansi í úthverfunum. Á myndinni má sjá hinn spánnýja & spennandi 307 VDL-vagn þeirra Kynnisferða vera fastur & einn sænskættaður Volvo vagn fyrir aptan hann á góðri leið með að ná honum. Hvað um það.
Dr. Gylforce skellti sér í kópvægsku hringleiðina nú síðdegis þegar hún var komin á korterstíðni. Nema hvað.Hinn engilsaxneski & funheiti 304 MAN vagn er aptur kominn á vígvelli veganna & virðist hafa leyst systurvagn sinn, 305 MAN, af hólmi. Vagninn sá var heldur seinn fyrir en eystur í Engihjalla hélt aukavagninn vel áætlun. Góðu heilli.
Dr.-inn settist inn í aukavagninn á leið 35 & bauð byggðasamlagið að þessu sinni upp á Citelis 129 vagninn.
Eitthvað var vagnstjórinn heldur vankaður hvar hann lagði vagninum þar sem leiðir 1, 2, & 4 leggja í Hamraborginni áður en þær halda áleiðis í miðbæinn.
Vagnstjórinn rankaði fljótt úr rotinu sem betur fór & lagði vagninum á réttum stað, gegnt Bókasafni okkar Kópvæginga.
Illa hraktir í erg & gríð
& urðu að stöðva för.
Stormsins bylur & stórhríð
svo strætó lagðist í kör.
Myndir: mbl.is, ruv.is, visir.is, citybus.piwigo.com o.fl.
Flokkur: Bloggar | 11.3.2015 | 15:22 (breytt 13.3.2015 kl. 08:59) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 124119
Annað
- Innlit í dag: 3
- Innlit sl. viku: 29
- Gestir í dag: 3
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.