Meir áberandi eptirlit ...

CAM01122Hinn munúðarfulli & meinlegi dr. Gylforce finnst alltaf heldur hvimleitt þegar vagnstjórar eyða tímanum í argaþras við vagnverja. Vagninn fer þá optar en ekki af stað á réttum tíma & áætlunin fer úr skorðum.

Optsinnis hefir þetta komið fyrir, sérstaklega virðast sumir vagnstjórar komast í sérstakt "þrasstuð" þegar unglingar stíga inn í vagninn & borga með klinki. Sjálfsagt vilja þeir meina að viðkomandi hafi ekki greitt rétt gjald eða sé að reyna að svindla sér inn í vagninn með öðrum hætti. Doksi kallinn fær nett flassbakk í hina "geðþekku" vagnstjóra SVK forðum daga þegar hann var unglingur en þeir voru vægast sagt harðir í horn að taka. Enda fengu þeir nafngiftir á borð við Satan, Hitler, Stalín, Sá kölski o.s.frv.

Að mati dr. Gylforce á hlutverk vagnstjórans að vera aksturinn fyrst & fremst & að halda vel áætlun. Það er ugglaust erfitt & krefjandi að keyra þessa stóru vagna allan liðlangan daginn & því ástæðulaust að eyða orkunni í einhvern skort hjá vagnverjum á 20 kalli hér & 50 kalli þar.

MBL0157708Það á að vera í verkahring eptirlitsmanna að fara um vagnana & fylgjast með að vér vagnverjar greiðum rétt gjald & göngum snyrtilega um þá.

Dr.-num finnst hann alltaf sjá minna & minna af eptirlitsmönnum - eru þeir kannski bara komnir í önnur störf hjá byggðasamlaginu???

Gylforce-inn er stæltur, stór
stikar út í skýli.
Með eðal Max & öngvan bjór
á leið um nýbýli.


Neðri mynd:mbl.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband