Fríkeypis ferðir ...

12047245_1038629999502587_706131441_nHinn hálfdimmi & húmaði dr. Gylforce hljóp af stað í fríkeypis vagna í gærkvöldi. Maður lifandi. Doksi kallinn mátti öngvan tíma missa. Nema hvað.

Dr. Gylforce gekk að skýli sínu & varð heldur leiður hvar hin funheita leið 35 kom 5 mínútum of seint. Doksi undraðist það því yfirleitt er ekki mikið um tafir á vögnunum á kvöldin. Hvað um það.

Dr.-inn heilsaði með virktum leið 11 í Mjóddinni & settist inn í einn af fjölmörgu Crossway-vögnum þeirra Fjarðarmanna. Vagnstjórinn sem var á vacht þetta kvöldið virtist vera á hraðferð hvar vagninn var yfirleitt um þremur mínútum of fljótur. Það er líka hvimleitt þegar það gerist & skrýtið að upplifa vagnstjóra sem virðist vera slétt sama um það.

Dr. Gylforce gekk út úr hinni elleftu leið við Hlemmtorgið & átti von á því að vagnstjórinn myndi tímajafna vagninn. Ó, nei. Hann brunaði af stað & skeytti öngvu um tímaáætlanir leiðar 11.

Langt er um liðið síðan doksi kallinn sté inn í leið 15 & gerði hann bragarbót á því. Hinn 185. Crossway vagn kom aðvífandi & tyllti dr.-inn sér tignarlega í vagninn. Hann hugði á ferð upp í Ártún með vagninum en fékk nóg af gelgjulátum í nokkrum vagnverjum & hoppaði út við Grensás.

Beint fyrir aptan leið 15 beið leið 2 & hoppaði Stútlautardoksi upp í hann & hélt í Voginn.

Hann lokaði svá hringi sínum venju samkvæmt í þeim funheita á leið 35 & hélt í fegurstu laut jarðarkringlunnar.

Lifið veil!


Urmull af fríum ferðum
fór þó seint um kvöld.
Glæstir, af öllum gerðum
& gleðin var við völd.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband