Sexí sveim ...

134805538.SdBb8MWfHinn kyntöfrandi & kynþokkafulli dr. Gylforce hefir komist í álnirnar sjúklegu undanfarna daga þrátt fyrir að vera hálfblindur á öðru auga vegna lithimnubólgu - aptur. Hvað um það. 

Dr. Gylforce hefir hoggið eptir því að hvergi er jafn unaðslegt að vera en við Umferðarmiðstöð BSÍ um kl. 14:20-14:30 virka daga. Hví???

CAM01564Jú, á þessum fagra punkti getur dr.-inn - & aðrir vagnverjar - valið úr þremur unaðsvögnum sem gefa góða þrásetu; um kl. 14:23 lagði úr vör blágulur vagn á leið 55 áleiðis í Garðabæ, Hafnarfjörð & svá auðvitað upp á Leifsstöð. Sá blái vekur ávallt dásemdar kenndir hjá doksa kallinum.

20140831123807-e8f2f980Stuttu síðar kom aðvífandi liðvagn á leið 1 sem er aukavagn. Hver vill ekki komast í dýrðar Mercedes Benz vagn & halda með honum suðureptir??? Dr.-inn hjó aukinheldur eptir því að aukavagninn ekur nú lengra en bara upp í Hamraborg. Það er vel gert hjá Strætó bs. & öngvin vanþörf á því. Nema hvað.

Síðast en alls ekki síst kom stundvíslega klukkan 14:30 hinn rauðbirkni doubledecker "sightseeing" vagninn. Fyrir litlar 3500 krónur kemst maður á annað "level" um vígvelli veganna. En ekki hvað???

Hinsvegar fékk hinn glámskyggni Gylforce tveggja tíma pásu hjá Gláka augnlækni í gær & var ekki lengi að halda á vit vagna. Hann valhoppaði frá augndeild Landspítalans við Eiríksgötu að Hlemmtorgi & hoppaði inn í leið 18. Nú skyldi Grafarholtið njóta gjörhygli Gylforce-ins - & hananú! 

Með auga sjúkt en ekki skolt
út um hvipp & hvapp.
Gylforceinn um Grafarholt
með gjörhyglina skrapp.

Dr.-inn fékk hinn tveggja ára gamla 141 Crossway vagn á leið 18. Fáir vagnverjar voru á ferli nema að við Veðurstofu Íslands kom ung kona inn með barnavagn. Stuttu síðar sté inn í vagninn maður með fákinn sinn. Eitthvað fór það í taugarnar á vagnstjóranum & tönglaðist á því að ekki ætti barnavagn & reiðfákur að vera samtímis í vagninum. Þetta var á miðjum degi & lítið mál í sjálfu sér að hafa þetta tvennt. Furðulegt hvað sumir hlutir trufla. Hvað um það.

Doksi kallinn brá sér aukinheldur í leið 26 & hina sjöttu leið. Hann hefir áður farið í leiðir þessar en um að gera að velta vöngum yfir hinu lostfagra leiðakerfi í Grafarvogi & Grafarholti. 

Í lostfögru leiðakerfi
leikur doksi sér.
Akandi í öll hverfi
unaðslegt það er.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband