Doksi austur fyrir fór
fjall & heiði.
Kom hún hvít eins & snjór
hvað er á seyði?
Hinn fjallmyndarlegi & forkunnarfagri dr. Gylforce fór heldur betur fýluferð með ungviðið í dag hvar hann hlakkaði ótrúlega mikið til að komast í blágulu vagnana. En nei, nei, það varð eigi raunin - illu heilli.
Við Mjódd þeirra Breiðhyltinga beið eptir oss hvítur rútuskratti frá Hópbílum á leið 51 & því ljóst að skrattinn atarna myndi ekki sjást á rauntímakorti & ekki heldur vera með fullnægjandi upplýsingatöflu inn í vagninum.
Það er ótrúlegt hvað byggðasamlagið sýnir verktökum sínum mikla linkind. Doksi kallinn fékk djöful þennan bæði fram & til baka frá Hveragerði & vonar að verktakinn suður í Firði fái væna sekt fyrir að bjóða upp á þennan fararskjóta.
Sveiattan!!!
Færsluflokkar
Bloggvinir
Sept. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.9.): 1
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 124117
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.