Hinn tvöfaldi & taktfasti dr. Gylforce tók vagnana með trukki helgi þessa hvar hann & hapði unga vagnverjann sér til halds & trausts. En ekki hvað???
Vagnverjarnir knáu úr Voginum fagra komu sér vel fyrir í tveggja hæða vagninum við Hörpuna & höpðu hug á því að sækja Hvalasafnið heim. Reyndist það hið hvalafyllsta verkefni & greinilegt á öllu að vandað hefir vel til verka við uppsetningu á hvölunum; öngvir vitishvalir þar á ferð. Nema hvað.
Við Fiskislóð vestur á Granda vildu vagnverjarnir vinalegu vafra næst inn í leið 14. Vagnstjórinn var vart á þeim buxunum & hleypti okkur inn með semingi. Hann var af hinu margfræga erlenda bergi brotinn & reyndi að útskýra fyrir Gylforce-num að hann væri á leið í pásu & því ætti öngvinn að koma inn í vagninn fyrr en við endastöðina sjálfa á Granda.
Þegar þangað var komið skipaði vagnstjórinn okkur að yfirgefa vagninn. Doksi kallinn maldaði eitthvað í móinn en hapði eigi erindi sem erfiði. Klukkan var 13:58 & hoppuðu þeir feðgar út & biðu í kulda & smá ofankomu.
Sjö mínútum síðar kom vagnstjórinn & við héldum áfram leið okkar að BSÍ. Þetta doksi ei skilið fær. Hví máttu þeir ekki bíða í vagninum í sjö mínútur??? Það er alltaf í lagi þegar dr.-inn bíður í 5-7 mínútur á leiðum 28 & 35 í Hamraborginni. Hver er munurinn???
Annað verktakafyrirtæki annast akstur á leiðum 28 & 35 en á leið 14. Eru ekki sömu reglur??? Eru ekki allir að keyra fyrir Strætó bs.???Hinsvegar man Gylforce-inn vel eptir hinum "geðþekku" vagnstjórum hjá SVK forðum daga. Flestir höpðu þeir viðurnefni eins & Kölski, Hitler, Stalín & Satan & þeir leyfðu manni ALDREI að bíða í vögnunum.
Kannski eiga SVK & Hagvagnar/Hópbílar meira sameiginlegt að maður hélt í fyrstu.
Vagnverjum úthýst var
vagnstjóri skaust í hægðir.
Úti flugu flygsurnar
mér fannst við niðurlægðir.
Efsta mynd: whalesmuseum.com
Neðsta mynd: busglobe.com
Flokkur: Bloggar | 6.3.2016 | 22:56 (breytt 7.3.2016 kl. 10:04) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (13.7.): 2
- Sl. sólarhring: 7
- Sl. viku: 29
- Frá upphafi: 123841
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.