Hinn litríki & lauflétti dr. Gylforce hefir líkt & endranær farið um víðan völl meðal vagnanna - vina vorra - enda unaðsferðamáti. En ekki hvað???
Nú berast okkur þær fregnir að vagnstjórar verði að baltnesku bergi brotnir í sumar. Illa gengur að finna Frónbúa til aksturs enda búið að setja dekk á allar mögulegar hásingar til þess að þjónusta tæplega tvær milljónir ferðamanna sem spássera ætla um landið okkar í sumar. Maður lifandi.
Byggðasamlagið hyggst ráða til sín 25 vagnstjóra frá Lithaugalandi. Það er vel & fagnar doksi kallinn þessari ráðstöfun. Vonandi verður þó undibúningi þeirra vel háttað en doksa er enn í fersku minni þegar hann sat í leið 35 & vagnstjórinn vissi ekkert hvert hann átti að fara. Sá var af erlenda berginu & nýbyrjaðir í starfi. Hvað um það.
Þetta verður spennandi & vonandi sýna Litháarnir að þeir eru vel í stakk búnir til þess að aka hér á vígvöllum veganna.
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2016/04/21/lithaar_keyra_fyrir_straeto/
Í sumar verður ekkert slen
sæla algjör & geðfró.
er launmorðingjar frá Litháen
leggja í´ann hjá Strætó!!!
Flokkur: Bloggar | 23.4.2016 | 21:52 (breytt kl. 21:54) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.7.): 0
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.