Hugljúfur um hjartað ...



20140831122302-81aef655Hinn hjartahreini & hugheili dr. Gylforce trúði vart sínum eigin augum hvar leið 35 kom aðvífandi að hjarta okkar Kópvæginga, Hamraborginni. Þetta varð doksi að prófa - sem & hann gjörði. Maður lifandi.

Dr.-inn hóaði því í hinn sænskættaða 302 Volvo vagn á leið 35 um kl. 16:41 við fegurstu laut jarðarinnar, Stútulautina. 

592Eptir hepðbundinn rúnt um Kársnesið beygði vagninn upp Auðbrekkuna vegna malbikunarframkvæmda á Nýbýlaveginum. Þvílikur unaður - & ekki var hann búinn - maður lifandi - keyriði mig heim!

Leið 35 beygði upp Skeljabrekkuna & fékk dr.-inn þvílíka nostalgíu hvar hann sat eitt sinn í leiðum 21 & 23 hjá SVK á þessum slóðum fyrir rúmlega 25 árum síðan. Eða síðar - þó ekki nærbuxur!

591Sá sænskættaði ók svá eystur eptir Hamraborginni & mátti litlu muna að doksi kallinn missti sig gjörsamlega. Þarna ók leið 20 í denn hvar hún kom úr Reykjavíkinni & tók eðalhring um Hamraborg & Skólatröð áður en hún áði við skiptistöð okkar Kópvæginga.

Á þessum slóðum keyrði aukinheldur leið 21 & hélt svá áfram Álfhólsveginn áður en hún hélt suður í Hvammana. Þetta voru dagarnir; Benz vagnar SVK; Y-373, Y-550, Ikarus-inn; Y-370, Y-371, Y-372 & Y-10372. Síðar komu þýsku, notuðu Benz fangavagnarnir, LT-582, MN-273 & TK-755. Ó - já.

Vagnaferðir með SVK voru ógleymanlegar & vitaskuld hinir nafntoguðu vagnstjórar; Hitler, Stalín, Satan & Sá kölski. Þeir vissu sko hvað þjónusta var - eða þannig!

Þessum unaði mun dr. Gylforce gleyma seint - ef þá nokkurn tíma.

Hugljúfur um hjartað
með heilögum Svía.
Keikur, gat ei kvartað
kallaði - Mamma mía!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband