Hinn spennti & spengilegi dr. Gylforce fær ekki betur séð en byggðasamlagið Strætó sé nú heldur betur að spenna gjörðina, hvar þeir hafa samþykkt kaup á fjórum spennandi rafmagnsvögnum fyrir litlar 300 milljónir króna. Maður lifandi.
Að sögn framkvæmdastjóra Strætó munu vagnarnir geta ekið um 250 kílómetra fullhlaðnir. Það dugar raunar skammt nema á stuttum leiðum & því ljóst að setja þarf upp hleðslustöðvar við endastöðvar leiðanna.
Rafmagnsvagn er næstum því tvöfalt dýrari í innkaupum en venjulegur vagn - stykkið á litlar 75 milljónir - en vitaskuld & vonandi hagkvæmari þegar allt kemur til alls.
Það er vel gert hjá byggðasamlaginu að festa fjár í vögnum þessum. Þeir eru væntanlegir í vor & verður fróðlegt að sjá hvernig þetta mun ganga.
Dr. Gylforce styður þetta heilshugar & getur nú vart beðið eptir vorinu. Nema hvað.
http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2016/07/11/rafmagnsstraeto_hagkvaemastur/
Á reinarnir rafmagnsvagn
í Reykjavíkinni.
Fjögur stykki, fyrirtaksmagn
ferðamengun minni.
Flokkur: Bloggar | 27.9.2016 | 09:20 (breytt kl. 10:15) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Ágúst 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.8.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 16
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.