Sel, Fell & Hólar...

12

Opt hann Gylforce gólar:
Gaman er á leið.
Um snotur Sel & Hóla
sem & Fellin greið.

Hinn Breiðhylti & breiðleiti dr. Gylforce brokkaði í leiðir þrjár sem aka um Selin, hvar hann gleymdi víst að minnast á leið 12 hér á dögunum. 

Hin tólfta leið rennir sér aðeins inn í Seljahverfið þótt hún sé nú nokkuð fjarlæg híbýlum doksa karlsins. Hvað um það.

21488965323_5891345dcdDr. Gylforce hóf leik með leið 3 um kl. 16:25 við Skógarselið. Hinn glæsti Iveco vagn númer 175 kom 7 mínútum of seint en tókst að vinna það upp & áði við Mjódd okkar Breiðhyltinga kl. 16:51.

Dr.-inn hélt með vagni þessum alla leið að Lærða skólanum hvar hann sá leið 12 í humátt á eptir hinni þriðju. Málið dautt.

Dr.-inn valhoppaði inn í VDL-vagninn á leið 12 & sat sem fastast með honum alla leið að Fellaskóla. 

Copy_of_Straeto_mid

Bæði leið 3 & 12 sitja fastar í umferðarteppu síðdegisins hvar doksi kallinn vildi nú að skurkur yrði gerður í forgangsreinum vagnanna. Nema hvað.

Leið 12 & 4 hittast í hverfi Fellanna & gekk dr. Gylforce að lúkningu hnarreistur inn í hina fjórðu leið & hélt í hina nýju Stútulaut sína við Stúfselið. Maður lifandi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband