Það var kaos við Costco
kostaði vagnatöf.
Æðibunugangur altsvo
því allt þarna er gjöf!
Hinn knái & kviki dr. Gylforce kom sér á leið í blíðu gærdagsins, hvar hún er nefnilega sú eina sem ekur um hið geysivinsæla Kauptún. Það er sumsé leið 21. Nema hvað.Dr. Gylforce sté inn í tæplega eins árs gamlan Ivecovagninn á leið 21 við Mjódd okkar Breiðhyltinga. Fáir vagnverjar voru um borð í fyrstu en óðara tíndust þeir inn í leið þessa. Vagninn silaðist í gegnum Kauptúnið & við stoppistöðina við Costco-ið tæmdist hann. Doksi einn eptir. Takk fyrir túkall!
Þá tóku aptur við tafir að komast út úr túninu. Samkvæmt öruggum heimildum mun leið 21 taka stakkaskiptum í haust. Akstursleiðinni verður töluvert breytt & tíðnin aukin. Það mun koma sér vel fyrir "costcóska" vagnverja & segir dr.-inn bara eitt við þá: Megi kaupmátturinn vera með ykkur!
Dr. Gylforce einhenti sér í leið leiðanna, leið 1, við Fjörðinn & tók að lúkningu fjarkann í Hamraborginni háu & fögru, áleiðis upp í Stútulautarselið sitt.
Yfir&út!
Flokkur: Bloggar | 11.6.2017 | 12:04 (breytt kl. 12:29) | Facebook
Færsluflokkar
Bloggvinir
Júlí 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | ||
6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 |
13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 |
20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 |
27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (27.7.): 2
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 30
- Frá upphafi: 123909
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 30
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.