Kostar í klósett að kúka ...

6Ef þér verður brátt í brók
& borunni vilt strjúka.
Gríptu með þér klink án djóks
& greiddu fyrir að kúka.

200 kall að kúka

Hinn borubratti & blíðláti dr. Gylforce brölti í hægðum sínum í Mjódd okkar Breiðhyltinga, hvar hann rak glyrnur sínar í hið nýja hlið sem gætir úrgang okkar verjanna. En ekki hvað???

1035801Dr.-inn fagnar því vitaskuld að hægt sé að komast á snyrtingu í þessari miklu tengistöð, hvar um fjórar milljónir vagnverja fara þarna um á hverju ári.

Reyndar fór doksi kallinn opt & iðulega á settið í verslunarmiðstöðinni sem er smá útúrdúr. Hvað um það.

28811050 10155517446868348 254639684 oÞað vekur aukinheldur athygli að einkafyrirtæki setur þetta upp & starfrækir salernin. Ein ferð í herlegheitin kostar litlar 200 krónur & hlakkar dr.-inn til að prófa að tefla þarna við páfann. 

Yfir&út!



Myndir: visir.is & mbl.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband